Viðtalið
Sviðssetning
Draumasmiðjan
Sýningarstaður
Hafnarfjarðarleikhúsið
Frumsýning
4. mars 2006
Tegund verks
Leiksýning
Viðtalið er er Döff sýning, þetta krefst smá útskýringar. Döff-leikhús má kannski þýða sem leikhús heyrnarlausra (Döff er heyrnarlaus á táknmáli). Þá er hins vegar ekki endilega átt við að allir leikararnir séu heyrnarlausir en eitt af skilyrðunum er þó að a.m.k einn leikari í sýningunni sé heyrnarlaus. Annað skilyrði fyrir því að geta kallað sýningu Döff-leikhús er að hún sé aðgengileg heyrnarlausum. Þá annað hvort að hún sé ekki byggð á töluðu máli t.d. sé látbragðsleihús eða að notað sé táknmál – sem hluti af sýningunni eða notast við túlkun.
Viðtalið fjallar um mæðgur sem eru að fara í viðtal. Dóttirin er heyrnarlaus og móðirin heyrandi. Túlkur kemur til að vera til aðstoðar í viðtalinu. Spyrjandinn er seinn og mæðgurnar fara að spjalla saman í gegnum túlkinn. Þar sem dóttirin er alin upp á tímum talmalsstefnunnar (1880 – 1980) þá talar móðir hennar ekki táknmál og íslenskukunnátta dótturinnar er verulega af skornum skammti. Á meðan þær mæðgur bíða eftir blaðamanninum byrja þær að rifja upp gamla tíma og fljótlega kemur í ljós að þær eiga ýmislegt óuppgert.
Höfundar
Laila Margrét Arnþórsdóttir
Margrét Pétursdóttir
Leikstjóri
Margrét Pétursdóttir
Leikkonur í aðalhlutverki
Elsa Guðbjörg Björnsdóttir
Soffía Jakobsdóttir
Leikkonur í aukahlutverki
Árný Guðmundsdóttir
Berglind Stefánsdóttir
Tinna Hrafnsdóttir
Leikmynd
Helga Rún Pálsdóttir
Búningar
Helga Rún Pálsdóttir
Lýsing
Garðar Borgþórsson
Tónlist
Pétur Grétarsson