Time
Sviðssetning
UglyDuck Productions
Sýningarstaður
Hafnarfjarðarleikhúsið
Frumsýning
9. júní 2007
Tegund
Dansverk
Sýningin Dark Nights samanstendur af tveimur sjálfstæðum dansverkum; Timeog sólóverkinu Ein, auk stuttmyndarinnar Embrace. UglyDuck.Productions er nýr dansleikhúsflokkur undir stjórn Steinunnar Ketilsdóttur og Andreas Constantinou. Eftir að hafa bæði unnið sjálfstætt að list sinni og sýnt verk sín í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum ákváðu þau að sameina listræna krafta sína og stofna UglyDuck.Productions. Flokkurinn hefur það að markmiði að skapa margbreytileg og framúrstefnuleg dansverk sem endurspegla samtímann og áhorfendur dagsins í dag.
Time er fyrsta samstarfsverkefni Steinunnar Ketilsdóttur og Andreas Constantinou. Verkið er samið fyrir fjóra dansara og varpar undarlegu ljósi á mannleg samskipti og sambönd.
Danshöfundar
Andreas Constantinou
Steinunn Ketilsdóttir
Dansarar
Andreas Constantinou
Steinunn Ketilsdóttir