Shake Me

Shake Me

Sviðssetning
Reykjavík Dance Festival

Sýningarstaður
Hafnarfjarðarleikhúsið

Frumsýning
3. september 2009

Tegund verks
Danssýning

Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan frumsýnir nýtt íslenskt dansverk með söngívafi. Í sínu nýjasta dansverki gerir Hreyfiþróunarsamsteypan dramatíska tilraun til að drepa sig. Við deyjum úr ást, af sæmd, alveg óvart, fyrir misskilning, af annarra manna völdum eða einfaldlega af því að okkur langar það.

Er ennþá hægt að upplifa raunverulegar tilfinningar í daglegu lífi eða þurfum við að búa þær til? Að þessu sinni leitum við að yfirvofandi dauða og ódauðlegri ást í harmleikjum William Shakespeare. (Sérlega hjálparhönd réttir tónlistarmógúllinn og töffarinn Jim Steinman)

shake_me

Danshöfundar
Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan;
Ásgerður G. Gunnarsdóttir
Katrín Gunnarsdóttir
Melkorka Sigríður
Ragnheiður S. Bjarnarson

Leikari í aðalhlutverki
Hannes Óli Ágústsson

Dansarar
Ásgerður G. Gunnarsdóttir
Katrín Gunnarsdóttir
Melkorka Sigríður
Ragnheiður S. Bjarnarson

Lýsing
Garðar Borgþórsson

Tónlist
Bonnie Tyler
Meatloaf
Steelheart
Tina Turner

– – – – – –

Reykjavík Dance Festival hóf göngu sína árið 2002. Stofnendur eru þau Ástrós Gunnarsdóttir, Cameron Corbett, Jóhann Freyr Björgvinsson, Nadia Banine, Ólöf Ingólfsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Þessir sjálfstætt starfandi danslistamenn ákváðu að sameina krafta sína og skapa hátíðina sem vettvang fyrir ný íslensk dansverk.

Hátíðin í ár verður haldin dagana 3.-6. september í Hafnarfjarðarleikhúsinu þar sem frumsýnd verða sex ný íslensk dansverk. Að auki verður haldin dansganga þar sem dans mun birtast almenningi á hinum ýmsu stöðum í miðborg Reykjavíkur bæði innandyra og utan. Þá hafa skipuleggjendur erlendra danshátíða staðfest komu sína. Með komu þeirra opnast möguleiki á mikilvægum tengslanetum, erlendu samstarfi og útrás íslenskra dansverka.

Áherslur hátíðarinnar hafa verið mismunandi frá ári til árs en meginmarkmiðið hefur ávallt verið að færa danslistina nær hinum almenna borgara, auka sýnileika nútímadans í samfélaginu og kynna sjálfstætt starfandi danslistamenn á Íslandi.

Margir íslenskir dansarar og danshöfundar starfa erlendis m.a. vegna skorts á verkefnum og aðstöðu hérlendis.  Aukið framboð sýninga eykur atvinnutækifæri fyrir dansara á Íslandi.  Um leið og hátíðin leggur áherslu á innrás danslistarinnar á Íslandi er mikilvægt að huga að útrásinni.  Danslistin er dæmi um hágæða útflutningsvöru í stöðugri framþróun.  Í ár er ætlunin að fara að fordæmi hátíðarinnar 2007 og bjóða hingað skipuleggjendum erlendra danshátíða.  Dansinn er alþjóðleg listgrein og það er hlutverk okkar að efla og rækta tengslin við samstarfsaðila okkar erlendis.

Á undanförnum árum hefur verið mikil framþróun í danslistinni hérlendis.  Æ fleiri einstaklingar og hópar hafa sprottið fram og hafa skapað sér sess hérlendis sem og erlendis.  Möguleikarnir hafa einnig stóraukist með tilkomu dansbrautar innan Listaháskóla Íslands.  Nútímadanshátíð í Reykjavík er vettvangur sem skipar stóran sess í þessari framvindu og gefur danshöfundum tækifæri til að styrkjast, eflast og þroskast.

Nútímadanshátíðin er orðin mikilvægur hlekkur fyrir listformið og hefur skapað sér fastan sess í menningarlífi borgarinnar. Samfélagslegt gildi hátíðarinnar er ótvírætt þar sem almenningi gefst kostur á að kynnast nútímadansi og fjölbreytileika hans hverju sinni.