Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig
Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig
Sviðssetning
Leikhópurinn Fjöður í hatti í samstarfi við Norðurpólinn
Sýningarstaður
Norðurpóllinn
frumsýningardagur
28. Ágúst.
Tegund verks
Leiksýning
Um verkið
Dr. Flosi og Vanja frænka hans eru bestu vinir. Flosi er doktor í hlæju- og kitluvísindum og safnar hlátri í krukkur. Hann dreymir um að verða heimsfrægur snillingur og komast í heimsmetabók Gunnars. Einn daginn býður hann Vönju frænku í heimsókn til að sýna henni nýjustu tilraunina.
Hann hefur nefnilega fundið leið til að kitla sjálfan sig. Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig er innileg og fyndin sýning fyrir börn á öllum aldri. Sýningin er um 50 mínútur að lengd með söng og dansi. Svo á Dr. Flosi það líka til að biðja börnin um að hjálpa sér við hitt og þetta.
Leikskáld:
Árni Kristjánsson, Finnbogi Þorkell Jónsson og Tinna Þorvalds Önnudóttir
Leikstjóri
Árni Kristjánsson
Tónskáld
Albert Hauksson
Lýsing
Arnar Ingvarsson og Árni Kristjánsson
Búningahönnuður
Margrét Agnes Iversen og Ásta Fanney Sigurðardóttir
Leikarar
Finnbogi Þorkell Jónsson
Leikkonur
Tinna Þorvalds Önnudóttir
Leikmynd
Margrét Agnes Iversen og Ásta Fanney Sigurðardóttir