Ferðalag Fönixins
Ferðalag Fönixins
Sviðssetning
Listahátíð í Reykjavík í samstarfi við Borgarleikhúsið
Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Stóra svið
Frumsýning
24. maí 2011
Tegund verks
Leiksýning
Hvað gerum við þegar stoðum lífsins er kippt undan fótum okkar og tilveran hrynur?
Goðsagnir vísa okkur veginn, líkt og landakort, þegar lífið leiðir okkur á ókunnar slóðir. Sagan um Fönixinn veitir áhorfandanum tækifæri til að spegla eigin lífsreynslu, ferðast með fuglinum inn í eldinn þar sem hann brennur upp, umbreytist og tekur flugið á ný – úr svartasta myrkrinu rís dagur nýrrar vonar. Áhorfendur eru leiddir inn í draumkenndan heim og upplifa sýninguna í miklu návígi við listamennina.
Það er hópur ólíkra og sterkra listamanna sem semur verkið, sami hópur og stóð að Úlfhamssögu sem hlaut tvenn Grímuverðlaun og sjö tilnefningar til Grímunnar árið 2005. Verkið er mjög persónulegt þar sem listamennirnir blása hver með sínum hætti lífi í glóðir þessarar táknrænu goðsögu. Verkið er flutt í miklu návígi við áhorfendur sem sitja í hring um sviðið. Frumstæður kraftur, hráar tilfinningar og ófullkomleiki fylla hinn draumkennda heim, tjáðan með mögnuðum tónum og seiðandi takti í leik, söng og dansi.
Höfundar
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Eivör Pálsdóttir
Filippía Elísdóttir
María Ellingsen
Reijo Kela
Snorri Freyr Hilmarsson
Leikstjórn
María Ellingsen
Leikkona
María Ellingsen
Leikmynd
Snorri Freyr Hilmarsson
Búningar
Filippía Elísdóttir
Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlist
Eivör Pálsdóttir
Dansari
Reijo Kela