Ég býð mig fram sería 2

Heiti verks
Ég býð mig fram sería 2

Lengd verks
70 mínútur

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
„Ég býð mig fram til að flytja verkið þitt. 14 höfundar. 14 örverk. Komdu og upplifðu smáréttaveislu.“

Ég býð mig fram / Sería 2 er listahátíð yfir eina kvöldstund þar sem listamenn þvert yfir listsviðið skapa sér hver sitt örverk. Í ár eru fjórtán höfundar. Listsviðið er breitt en listahátíðin er tilraun til að færa listsköpunina nær almenningi með suðupotti hugmynda úr ólíkum áttum, eins konar smáréttahlaðborði.

„Það er gjöfult að vinna þvert á listgreinar. Ég hef komist að því að rithöfunda dreymir á laun um að semja dansverk, myndlistarfólk vill búa til lifandi performans og dansarar þrá að fá að japla á góðum texta. Í raun hafa samræður mínar við listamennina snúist um hugmyndir sem geta tekið á sig alls kyns myndir ef við leyfum okkur að afmá mörk milli skapandi greina. Þannig hefur verkefnið ekki bara opnað heim minn og huga heldur hafa gestalistamennirnir komið sjálfum sér á óvart með því að láta gamla eða nýja drauma rætast.“

Ég býð mig fram / Sería 2 snýst um að brjóta niður veggi. Kasta sér út í alheiminn, sjá hvort hann grípur, kastar þér til baka eða fer með þig í rússíbanareið. Listahátíðin snýst um að koma saman, án fordóma, án landamæra, bara fólk að vinna saman. Hittast í miðju, teygjast, kuðlast eða móta hvort annað í stuttum þremur mínútum hvort sem þær verða enn fleiri í framtíðinni eða fyrstu og síðustu mínútur samvinnu þessara tveggja aðila.

Listrænn stjórnandi og leikstjóri listahátíðarinnar: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Ljósahönnuður og hljóðmaður: Hafliði Emil Barðason Ljósmyndari: Saga Sigurðardóttir
Grafískur Hönnuður: Sveinbjörg Jónsdóttir
Flytjandi: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Höfundar listahátíðar 2019: Almar Steinn Atlason, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Frank Fannar Petersen, Friðgeir Einarsson, Gréta Kristín Ómarsdóttir, Helgi Björnsson, Ilmur Stefánsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Kitty von Sometime, Kristinn Arnar Sigurðsson, Steinar Júlíusson, Ólafur Darri Ólafsson, Ólöf Kristín Helgadóttir, Urður Hákonardóttir.

Listahátíðin hlaut styrki frá Reykjavíkurborg og Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Sviðssetning
Í sviðssetningu Tjarnarbíós og Ég býð mig fram.

Frumsýningardagur
21. febrúar, 2019

Frumsýningarstaður
Tjarnarbíó

Leikstjóri
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Danshöfundur
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Lýsing
Hafliði Emil Barðason

Leikarar

Leikkonur
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Dansari/dansarar
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Sigurður Ingvarsson
Þórey Birgisdóttir
Margrét Ásta Arnarsdóttir
Daníel Ágúst Haraldsson
Anna Guðrún Tómasdóttir
Bjartey Elín Hauksdóttir
Emma Eyþórsdóttir
Eyrún Andrésdóttir
Gréta Arnarsdóttir
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
Katie Hitchcock
Lena Margrét Jónsdóttir.

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.unnurelisabet.com
www.facebook.com/BYDMIGFRAM/
www.instagram.com/eg_byd_mig_fram/