Baldur
Heiti verks
Baldur
Lengd verks
Uþb 1 klst og 30 mín
Tegund
Sviðsverk
Um verkið
Þungarokkararnir í Skálmöld ætla að henda leikmyndunum út af Stóra sviði Borgarleikhússins, rífa gat á búninginn hjá leikurunum og hækka í Marshallmögnurunum. Skálmöld og listafólk Borgarleikhússins taka höndum saman og magna upp norrænan seið með vænum skammti af þungarokki maríneruðum í leikhúsinu. Sagan er Baldur, sem Skálmöld rakti svo listilega á samnefndum diski sveitarinnar og gerði hálfa þjóðina að þungarokkurum.
Hljómsveitin Skálmöld hefur vakið mikla athygli og aðdáun fyrir plötur sínar, Baldur og Börn Loka sem sækja innblástur í þungarokk annars vegar og norrænar goðsögur hins vegar. Plöturnar mynda hvor um sig eina heild, lögin og textarnir eru samhangandi saga og textarnir allir kyrfilega ortir samkvæmt íslenskum bragarháttum. Hljómsveitin hélt útgáfutónleika í Háskólabíói við gríðarlega góðar undirtektir og sérstaka athygli vakti leikrænn og sjónrænn þáttur tónleikanna.
Sviðssetning
Borgarleikhus
Frumsýningardagur
4. apríl, 2014
Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Stóra svið
Leikskáld
Skálmöld
Leikstjóri
Halldór Gylfason
Tónskáld
Skálmöld
Hljóðmynd
Flexi
Lýsing
Gísli Bergur Sigurðsson
Búningahönnuður
Móeiður Helgadóttir
Leikmynd
Móeiður helgadóttir
Leikarar
Björgvin Sigurðsson
Baldur Ragnarsson
Gunnar Ben
Jón Geir Jóhannsson
Snæbjörn Ragnarsson
Þráinn Árni Baldvinsson
Leikarar
Guðjón Davíð Karlsson
Hilmar Guðjónsson
Leikkonur
Hildur Berglind Arndal
Söngvari/söngvarar
Björgvin Sigurðsson
Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is