Axlar-Björn
Axlar-Björn
Sviðssetning
Vesturport í samstarfi við Borgarleikhúsið
Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Litla svið
Frumsýning
19. janúar 2012
Tegund verks
Leiksýning
Í Axlar-Birni er sögð saga eins kaldrifjaðasta morðingja Íslandssögunnar. Móðir hans var sólgin í mannablóð þegar hún gekk með hann og faðir hans blóðgaði sig reglulega til að svala þorsta eiginkonu sinnar. Því má segja að óhugnaðurinn í eðli Axlar-Björns hafi hafist þegar í móðurkviði.
Axlar-Björn myrti átján manns áður en upp um hann komst. Fyrsta fórnarlambið dysjaði hann í flórnum á Knerri en hinum sökkti hann í Ígultjörn. Axlar-Björn var á endanum tekinn höndum og þau Steinunn, kona hans, dæmd til dauða á Laugarbrekkuþingi árið 1596. Brotið skyldi í Birni hvert bein og þau Steinunn síðan bæði hálshöggvin.
Axlar-Björn rekur öðrum þræði sögu þessa ógnvekjandi morðingja en veltir einnig upp sígildum spurningum um þá brenglun sem leiðir til óhæfuverka.
Höfundur
Björn Hlynur Haraldsson
Leikstjórn
Björn Hlynur Haraldsson
Leikarar
Atli Rafn Sigurðarson
Helgi Björnsson
Leikmynd
Axel Hallkell Jóhannesson
Búningar
Mundi
Lýsing
Kjartan Þórisson
Tónlist
Kjartan Sveinsson
Hljóðmynd
Eiríkur Sigurðsson
Brúður
Eva Berger
– – –
Björn Hlynur Haraldsson (1974) hefur getið sér gott orð bæði sem höfundur og leikstjóri, hann skrifaði t.a.m. leikritið Dubbeldusch auk þess að skrifa leikgerð Faust og Húsmóðurina ásamt félögum sínum í Vesturporti.
Kjartan Sveinsson (1978) úr Sigur Rós undirstrikar óhugnaðinn með tónlist og hljóðmynd.