Aftursnúið
Sviðssetning
Leikfélag Akureyrar
Menningarfélagið
Sýningarstaður
Rýmið
Frumsýning
22. maí 2010
Tegund verks
Danssýning
Menningarfélagið sýndi Aftursnúið, nýtt íslenskt dansverk í Rýminu, Leikfélagi Akureyrar síðastliðið vor. Sýningin vakti verðskuldaða athygli og góða dóma. Því munum við bjóða upp á nokkrar aukasýningar á Aftursnúið í haust.
Verkið fylgir tilraunum tveggja einstaklinga til að fóta sig við ókunnar aðstæður og takast á við heiminn eftir að honum hefur verið snúið á hvolf. Inntak verksins eru áföll í lífi fólks og eftirmálar þeirra, nánar tiltekið ferlið sem einstaklingur gengur í gegnum eftir áfall og þær breytingar sem það hefur í för með sér.
Danshöfundar
Ásgeir Helgi Magnússon
Inga Maren Rúnarsdóttir
Dramatúrg
William Collins
Leikmynd
Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Búningar
Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Lýsing
Egill Ingibergsson
Tónlist
Lydía Grétarsdóttir
Hljóðmynd
Lydía Grétarsdóttir
Dansarar
Ásgeir Helgi Magnússon
Inga Maren Rúnarsdóttir
– – – – – –
Menningarfélagið var stofnað sumarið 2007 og hefur sett á svið tvö dansverk, Hljóðspor og Moment seen og gert tvær dansstuttmyndir í samvinnu við Þóru Hilmarsdóttur. Aftursnúið er þriðja verkefni hópsins, sem er í senn dansverk og stuttmynd. Hópurinn hefur tekið töluverðum breytingum frá upphafi og fengið liðsauka úr öðrum listgreinum.