Tökin hert
Sviðssetning
Íslenska Óperan
Sýningarstaður
Íslenska Óperan
Frumsýning
21. október 2005
Tegund verks
Ópera
Systkinin Miles og Flóra eru munaðarlaus og frændi þeirra og forráðamaður vill sem minnst af þeim vita. Börnin búa á sveitasetri hans, Bly, og hann ræður þangað unga kennslukonu til að hugsa um þau. Fyrir á sveitasetrinu er ráðskonan frú Grose, sem sér um heimilishaldið og er kennslukonunni innan handar.
Áður en langt um líður fara dularfullir atburðir að gerast. Afturgöngur fyrrverandi kennslukonu barnanna, frk Jessel, og þjónsins Peter Quint eru á sveimi og reyna þau að ná börnunum á sitt vald, með hörmulegum afleiðingum.
Höfundur
Benjamin Britten
Leikstjóri
Halldór E. Laxness
Leikmynd
Snorri Freyr Hilmarsson
Búningar
Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing
Björn Bersteinn Guðmundsson
Jóhann Bjarni Pálmason
Tónlistarstjórn
Kurt Kopecky
Söngvarar
Gunnar Guðbjörnsson
Hanna Dóra Sturludóttir
Hulda Björk Garðarsdóttir
Ísak Ríkharðsson
Ólöf Kolbrún Harðardóttir
Þórunn Anna Kristjánsdóttir