Grease, the deleted scenes – In a theatre near you soon!
Sviðssetning
Reykjavík Dance Festival
Samsuðan og Co.
Sýningarstaður
Hafnarfjarðarleikhúsið
Frumsýning
5. september 2009
Tegund verks
Danssýning
Í eilífri leit okkar að mismunandi vinnuaðferðum í dansgerð koma hér við sögu söngleikir, endurvinnsla og sumarævintýri. Stefnt er að heimsyfirráðum með því að nota hið hefðbundna í von um að hið einstaka brjótist fram.
Danshöfundar
Alice Chauchat
Erna Ómarsdóttir
Halla Ólafsdóttir
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
Valgerður Rúnarsdóttir
Dansarar
Alice Chauchat
Erna Ómarsdóttir
Halla Ólafsdóttir
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
Valgerður Rúnarsdóttir
Kórinn
– – – – – –
Reykjavík Dance Festival hóf göngu sína árið 2002. Stofnendur eru þau Ástrós Gunnarsdóttir, Cameron Corbett, Jóhann Freyr Björgvinsson, Nadia Banine, Ólöf Ingólfsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Þessir sjálfstætt starfandi danslistamenn ákváðu að sameina krafta sína og skapa hátíðina sem vettvang fyrir ný íslensk dansverk.
Hátíðin í ár verður haldin dagana 3.-6. september í Hafnarfjarðarleikhúsinu þar sem frumsýnd verða sex ný íslensk dansverk. Að auki verður haldin dansganga þar sem dans mun birtast almenningi á hinum ýmsu stöðum í miðborg Reykjavíkur bæði innandyra og utan. Þá hafa skipuleggjendur erlendra danshátíða staðfest komu sína. Með komu þeirra opnast möguleiki á mikilvægum tengslanetum, erlendu samstarfi og útrás íslenskra dansverka.
Áherslur hátíðarinnar hafa verið mismunandi frá ári til árs en meginmarkmiðið hefur ávallt verið að færa danslistina nær hinum almenna borgara, auka sýnileika nútímadans í samfélaginu og kynna sjálfstætt starfandi danslistamenn á Íslandi.
Margir íslenskir dansarar og danshöfundar starfa erlendis m.a. vegna skorts á verkefnum og aðstöðu hérlendis. Aukið framboð sýninga eykur atvinnutækifæri fyrir dansara á Íslandi. Um leið og hátíðin leggur áherslu á innrás danslistarinnar á Íslandi er mikilvægt að huga að útrásinni. Danslistin er dæmi um hágæða útflutningsvöru í stöðugri framþróun. Í ár er ætlunin að fara að fordæmi hátíðarinnar 2007 og bjóða hingað skipuleggjendum erlendra danshátíða. Dansinn er alþjóðleg listgrein og það er hlutverk okkar að efla og rækta tengslin við samstarfsaðila okkar erlendis.
Á undanförnum árum hefur verið mikil framþróun í danslistinni hérlendis. Æ fleiri einstaklingar og hópar hafa sprottið fram og hafa skapað sér sess hérlendis sem og erlendis. Möguleikarnir hafa einnig stóraukist með tilkomu dansbrautar innan Listaháskóla Íslands. Nútímadanshátíð í Reykjavík er vettvangur sem skipar stóran sess í þessari framvindu og gefur danshöfundum tækifæri til að styrkjast, eflast og þroskast.
Nútímadanshátíðin er orðin mikilvægur hlekkur fyrir listformið og hefur skapað sér fastan sess í menningarlífi borgarinnar. Samfélagslegt gildi hátíðarinnar er ótvírætt þar sem almenningi gefst kostur á að kynnast nútímadansi og fjölbreytileika hans hverju sinni.