Nei, ráðherra!
Nei, ráðherra!
Sviðssetning
Leikfélag Reykjavíkur
Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Stóra sviðið
Frumsýning
18. febrúar 2011
Tegund verks
Leiksýning
Ýmsum óþrifnaði hefur ráðherrann ungi sápað undir teppi, atvinnulygarinn sjálfur, en þá aldrei dauðum manni – og það á hótelherbergi – með viðhaldinu – sem er innsti koppur í búri stjórnarandstöðunnar. Það stóð ýmislegt til í þessu hótelherbergi en ekki þetta! Hvað gera ráðherrar nú?
Þeir hringja auðvitað í strangheiðarlegan og vammlausan aðstoðarmann sinn sem lendir í skítverkunum eins og venjulega. Það þarf að sjá um viðhaldið, fela verksummerki, losna við líkið, bera fé í útsmoginn þjón og síðast en ekki síst að halda öllu leyndu fyrir afbrýðisömum eiginmönnum og -konum.
Þessi drepfyndni gamanleikur kemur úr smiðju Ray Cooney konungs gamanleikjanna. Hann er Íslendingum að góðu kunnur en gamanleikirnir Með vífið í lúkunum, Tveir tvöfaldir og Viltu finna milljón? hafa allir notið vinsælda hér á landi. Nei, ráðherra! (Out of Order) hlaut hin eftirsóttu Olivier-verðlaun sem besti gamanleikurinn í Bretlandi þegar verkið var frumsýnt.
Verkið hefur slegið í gegn víða um heim en fer nú í fyrsta skipti á íslenskar leikhússfjalir og verður flutt í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar en hann hefur matreitt og kryddað marga af bestu gamanleikjum seinni ára hérlendis, m.a. Fló á skinni og Sex í sveit.
Höfundur
Ray Cooney
Íslensk heimfærsla
Gísli Rúnar Jónsson
Leikstjórn
Magnús Geir Þórðarson
Leikari í aðalhlutverki
Guðjón Davíð Karlsson
Leikkona í aðalhlutverki
Lára Jóhanna Jónsdóttir
Leikarar í aukahlutverkum
Bergur Þór Ingólfsson
Hilmar Guðjónsson
Rúnar Freyr Gíslason
Sigurður Sigurjónsson
Þröstur Leó Gunnarsson
Leikkonur í aukahlutverkum
Elma Lísa Gunnarsdóttir
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
Unnur Ösp Stefánsdóttir
Leikmynd
Snorri Freyr Hilmarsson
Búningar
Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlist
Baggalútur
Hljóðmynd
Ólafur Örn Thoroddsen