Jöklar
Jöklar
Sviðssetning
Herbergi 408
Hafnarstræti 95, Akureyri
Frumsýning
15. apríl 2011
Tegund verks
Leiksýning/netleikhús
Jöklar er netleikhúsverk sem nýtir sér veraldarvefinn sem yrkisefni og leikrými. Verkið sem segir eina sögu í sex birtingarmyndum er leikið á milli landshluta og brýst út í gegnum veraldarvefinn inn í raunveruleg rými á fimm stöðum á Íslandi.
Verkið er leikið af fimm leikurum sem staddir eru á fjórum stöðum á Íslandi, Reykjavík, Ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði. Á hverjum stað fyrir sig upplifa áhorfendur söguna útfrá þeirri persónu sem stendur frammi fyrir þeim en á netinu bætist við sjötta birtingarmyndin en þar geta áhofendur fylgst með fléttunni eins og hún leggur sig í beinni útsendingu.
Persónurnar/leikararnir hafa samskipti í gegnum veraldarvefinn þar sem samskiptin taka á sig ýmsar myndir frá bréfaskriftum til samskipta í fullri mynd þar sem tölvuskjánum er varpað á stóran flöt í rými hvers og eins.
Ófeigur, 53 ára gamall fyrrum dansari í hjólastól sem lifir lífi sínu að mestu á netinu þykist hafa fundið allsherjar lausn fyrir þá landa sína sem eiga við hvers kyns andlega erfiðleika að stríða sökum ástandsins í þjóðfélaginu. Hann auglýsir meðferð, sem á rætur sínar að rekja til íhugunarkerfis frá Ástralíu en því hefur hann kynnst í gengum sjálfshjálparsíðuna Glacierworld.net. Til hans leita þrjár persónur sem búa sín í hverjum landshlutanum og eiga allar við einhverskonar getuleysi að stríða. Þær eiga það sammerkt að vera félagslega einangraðar og hafa búið til auka sjálf á veraldarvefnum þar sem þær gefa sig út fyrir að vera annað en þær eru.
Verkið er hægt að upplifa hvort heldur með því að sækja leiksýningarnar og/eða fara inn í netleikhúsið herbergi408.is og sjá hvernig allar sýningarnar fléttast saman í eina heild á tölvuskjánum.
Þegar sýningum lýkur verður unnið gagnvirkt netleikhúsverk og mun vera aðgengilegt á herbergi408.is textað á ensku fyrir alþjóðlega gesti netheima.
Höfundar
Hrafnhildur Hagalín
Steinunn Knútsdóttir
Leikstjórn
Steinunn Knútsdóttir
Dramatúrg
Hrafnhildur Hagalín
Leikarar í aðalhlutverkum
Árni Pétur Guðjónsson
Ársæll Níelsson
Leikkonur í aðalhlutverkum
Aðalbjörg Árnadóttir
Halldóra Malín Pétursdóttir
Helen Gould
Leikmynd
Rebekka Ingimundardóttir
Rafræn leikmynd og ljósmyndun
Snorri Gunnarsson
Kvikmyndagerð og tæknistjórn
Hákon Már Oddsson
Búningar
Rebekka Ingimundardóttir
Tónlist/Hljóðmynd
Jarþrúður Karlsdóttir
Listrænir stöðvarstjórar
Bjarni Massi Sigurbjörnsson
Helgi Örn Pétursson
Vigsís Arna Jóns Þuríðardóttir
Tæknifólk
Árni F. Sigurðsson
Eva Björk Kaaber
Kári Gunnlaugsson
Ólafur Þór Jósefsson
Óli Finnsson
Saga Garðarsdóttir
Vilborg Ólafsdóttir
Framkvæmdarstjóri
Ragnheiður Skúladóttir