Fólkið í kjallaranum
Fólkið í kjallaranum
Sviðssetning
Leikfélag Reykjavíkur
Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Nýja sviðið
Frumsýning
9. október 2010
Tegund verks
Leiksýning
Klara og Svenni búa í Hlíðunum í Reykjavík, eru í góðri vinnu og lífið brosir við þeim. Eitt fallegt sumarkvöld eiga þau von á vinum í mat. Lagt hefur verið á borð, grillið er klárt og tónlistin ómar. En í kvöld breytist allt…
Klara er neydd til að horfast í augu við sjálfa sig og sína nánustu. Atvik úr fortíðinni skjóta upp kollinum og fyrr en varir eru foreldrar hennar, systurdóttir og Barði í kjallaranum komin inn á gafl. Hugsjónir foreldra hennar og gildismat eigin kynslóðar eiga ekki samleið. Á þessu kvöldi uppgötvar Klara nýjar hliðar á sjálfri sér og eigin lífi.
Fólkið í kjallaranum er mögnuð, ljúfsár saga en um leið uppgjör við ‘68 kynslóðina og venjubundnar hugmyndir um lífið og tilveruna. Auður Jónsdóttir hefur verið í flokki fremstu rithöfunda þjóðarinnar síðustu ár.
Fólkið í kjallaranum kom út árið 2004 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin það ár og var síðar tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Síðan hefur bókin verið þýdd að fjölda tungumála og hlotið frábæra dóma víða um heim. Auður Jónsdóttir var fyrsta fastráðna leikskáld Borgarleikhússins og vinnur nú að ritun leikverks fyrir leikhúsið.
Höfundar
Auður Jónsdóttir
Ólafur Egill Egilsson
Leikstjórn
Kristín Eysteinsdóttir
Leikkonur í aðalhlutverkum
Ilmur Kristjánsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir
Leikarar í aukahlutverkum
Guðjón Davíð Karlsson
Hallgrímur Ólafsson
Jóhann Sigurðarson
Þröstur Leó Gunnarsson
Leikkonur í aukahlutverkum
Birgitta Birgisdóttir
Elma Lísa Gunnarsdóttir
Kristín Þóra Haraldsdóttir
Leikmynd
Snorri Freyr Hilmarsson
Búningar
Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlist/Hljóðmynd
Frank Hall