Litli prinsinn
Heiti verks
Litli prinsinn
Tegund
Barnaleikhúsverk
Um verkið
Maður sér ekki vel nema með hjartanu – það mikilvægasta er ósýnilegt augunum.
Aldurshópur: 5 – 99 ára.
Litli prinsinn er eitt ástsælasta bókmenntaverk liðinnar aldar, en verkið kom fyrst út árið 1943 og hefur síðan þá farið sigurför um heiminn. Bókin er talin meðal sígildra verka og hefur verið gefin út á fjölmörgum tungumálum.
Litli prinsinn er ljóðræn og heimspekileg saga sem talar í senn til barna og fullorðinna. Á yfirborðinu er verkið fallegt ævintýri en þegar dýpra er skyggnst er það fullt af dýrmætri visku.
Flugmaður nauðlendir í Sahara eyðimörkinni og rekst þar á lítinn dreng, prins frá öðrum hnetti, sem segir honum frá heimkynnum sínum úti í geimnum og ferðalagi sínu á milli hinna ýmsu hnatta himinhvolfsins og kynnum sínum af íbúum þeirra. Frásagnir þessa litla drengs varpa nýju og fersku ljósi á hegðun og hugsanagang fullorðna fólksins.
Falleg sýning á einstæðu verki um vináttuna og það sem skiptir máli í lífinu, fyrir áhorfendur á öllum aldri.
Sviðssetning
Þjóðleikhúsið
Frumsýningardagur
12. apríl, 2014
Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Kúlan
Leikskáld
Antoine de Saint-Exupéry
Leikstjóri
Stefán Hallur Stefánsson
Tónskáld
Vala Gestsdóttir
Leikmynd
Högni Sigurþórsson
Leikarar
Snorri Engilbertsson
Leikkonur
Þórunn Arna Kristjánsdóttir