EFTIRFARANDI sviðslistamenn eru handhafar Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna 2006.
Gríman var afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu og í beinni útsendingu Sjónvarpsins 16. júní 2006. Alls voru veitt verðlaun í 16 flokkum leiklistar auk áhorfendaverðlauna og heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands sem Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands hlaut.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Vigdísi verðlaunin við dynjandi lófatak áhorfenda í Borgarleikhúsinu sem risu úr sætum og ætluðu aldrei að hætta að klappa fyrir leikhússtjóranum fyrrverandi. Ásamt því að færa Vigdísi þakkir frá þjóðinni fyrir stórkostlegt framlag hennar til menningar og lista hafði Ólafur Ragnar það á orði að lófatakinu loknu að ljóst væri að leikhúsheimurinn á Íslandi sem og þjóðin öll bæru hlýjar tilfinningar til Frú Vigdísar sem hann sagði að jafnvel mætti líkja við ást.
Sýning ársins 2006 var valin leiksýningin Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar og í leikstjórn Baltasars Kormáks. Sýningin var opnunarsýning Kassans, sem er nýtt leiksvið Þjóðleikhússins í gamla íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu. Baltasar Kormákur hlaut einnig Grímuna fyrir leikstjórn, Ólafía Hrönn Jónsdóttir hlaut verðlaunin fyrir aðalhlutverk í Pétri Gaut sem og Ingvar E. Sigurðsson og Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir aukahlutverk sín í sýningunni.
SÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen í leikgerð Baltasars Kormáks í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn annaðist Baltasar Kormákur.
LEIKSKÁLD ÁRSINS
Hugleikur Dagsson fyrir leikverkið Forðist okkur í sviðssetningu CommonNonsense og Leiklistardeildar Listaháskóla Íslands.
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Baltasar Kormákur fyrir leikstjórn í leiksýningunni Pétur Gautur í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Hilmir Snær Guðnason fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Ég er mín eigin kona í sviðssetningu Leikhússins Skámána í samstarfi við Menningar- og listastofnun Kormáks og Skjaldar.
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Ólafía Hrönn Jónsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Pétur Gautur í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Ingvar E. Sigurðsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Pétur Gautur í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Pétur Gautur í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKMYND ÁRSINS
Börkur Jónsson fyrir leikmynd í leiksýningunni Fagnaður í sviðssetningu Þjóðleikhússins og fyrir leikmynd í leiksýningunni Woyzeck í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Vesturports.
BÚNINGAR ÁRSINS
Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Virkjunin í sviðssetningu Þjóðleikhússins og fyrir búninga í leiksýningunni Woyzeck í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Vesturports.
LÝSING ÁRSINS
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Ég er mín eigin kona í sviðssetningu Leikhússins Skámána í samstarfi við Menningar- og listastofnun Kormáks og Skjaldar, fyrir lýsingu í leiksýningunni Fagnaður í sviðssetningu Þjóðleikhússins og fyrir lýsingu í leiksýningunni Maríubjallan í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar.
TÓNLIST ÁRSINS
Nick Cave og Warren Ellis fyrir tónlist í leiksýningunni Woyzeck í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Vesturports.
SÖNGVARI ÁRSINS
Andrea Gylfadóttir fyrir hlutverk sitt í söngleiknum Litla Hryllingsbúðin í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar í samstarfi við Íslensku Óperuna.
DANSARI ÁRSINS
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Áróra Bórealis í sviðssetningu Bórealis Ensemble og fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Critic's Choice? í sviðssetningu Íslenska Dansflokksins.
DANSHÖFUNDUR ÁRSINS
Leikhópurinn fyrir dans og hreyfingar í leiksýningunni Forðist okkur í sviðssetningu CommonNonsense og Leiklistardeildar Listaháskóla Íslands.
BARNASÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Leitin að jólunum eftir Þorvald Þorsteinsson í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Tónlist eftir Árna Egilsson. Leikstjórn annaðist Þórhallur Sigurðsson.
ÚTVARPSVERK ÁRSINS
Útvarpsleikritið Skáld leitar harms eftir Guðmund Inga Þorvaldsson í leikstjórn Sigrúnar Eddu Björnsdóttur. Hljóðsetningu annaðist Hjörtur Svavarsson.
HEIÐURSVERÐLAUN LEIKLISTARSAMBANDS ÍSLANDS
Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu menningar og lista á Íslandi.
ÁHORFENDAVERÐLAUNIN (Sýning ársins að mati áhorfenda)
Söngleikurinn Hafið bláa eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur í sviðssetningu Ísmediu. Tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Leikstjórn annaðist Agnar Jón Egilsson.
< Fyrri | Næsta > |
---|