UPPSKERUHÁTÍÐ sviðslistanna á Íslandi árið 2011, Gríman, var haldin fimmtudagskvöldið 16. júní í Borgarleikhúsinu og í beinni útsendingu á Stöð 2. Á hátíðinni voru Grímuverðlaunin veitt í níunda sinn í alls 16 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands, sem eitt fremsta leikskáld þjóðarinnar um árabil, Oddur Björnsson, hlaut.
Sýning ársins 2011 var valin leiksýningin Lér konungur eftir William Shakespeare í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Sýningin hlaut alls 6 Grímuverðlaun en hún var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins annan jóladag, þann 26. desember 2010. Ástralski leikstjórinn Benedict Andrews hlaut verðlaunin fyrir leikstjórn og Arnar Jónsson var valinn leikari ársins í titilhlutverkinu. Leikararnir Atli Rafn Sigurðarson og Margrét Vilhjálmsdóttir hlutu Grímuna fyrir hlutverk sín í sýningunni og Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir hlaut Grímuna fyrir tónlistina í sýningunni.

SÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Lér konungur eftir William Shakespeare í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn annaðist Benedict Andrews.
LEIKSKÁLD ÁRSINS
Auður Jónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson fyrir leikverkið Fólkið í kjallaranum í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Benedict Andrews fyrir leikstjórn í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Arnar Jónsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Elsku barni í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Atli Rafn Sigurðarson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Margrét Vilhjálmsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKMYND ÁRSINS
Halla Gunnarsdóttir fyrir leikmynd í leiksýningunni Strýhærða Pétri í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
BÚNINGAR ÁRSINS
Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Ofviðrinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
LÝSING ÁRSINS
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Ofviðrinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
TÓNLIST/HLJÓÐMYND ÁRSINS
Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir fyrir tónlist í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
SÖNGVARI ÁRSINS
Ólafur Kjartan Sigurðarson fyrir hlutverk sitt í óperunni Rigoletto í sviðssetningu Íslensku óperunnar.
DANSARI ÁRSINS
Gunnlaugur Egilsson fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Bræðrum í sviðssetningu Pars Pro Toto í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið.
DANSHÖFUNDUR ÁRSINS
Valgerður Rúnarsdóttir og hópurinn fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Eyjaskeggi í sviðssetningu Reykjavik Dance Festival.
BARNASÝNING ÁRSINS
Brúðuleiksýningin Gilitrutt eftir Bernd Ogrodnik í samvinnu við Benedikt Erlingsson í sviðssetningu Brúðuheima. Leikstjórn annaðist Benedikt Erlingsson.
ÚTVARPSVERK ÁRSINS
Útvarpsleikritið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson. Leikari Ingvar E. Sigurðsson. Tónlist Hilmar Örn Hilmarsson. Hljóðsetning Einar Sigurðsson. Leikstjórn annaðist Jón Atli Jónasson.

HEIÐURSVERÐLAUN LEIKLISTARSAMBANDS ÍSLANDS
Leikskáldið Oddur Björnsson fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu leiklistar.
ÁHORFENDAVERÐLAUNIN
Leiksýningin Nei, ráðherra! í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins. Sýningin hlaut flest atkvæði í símakosningu um sýningu ársins að mati áhorfenda.
Þær fjórar sýningar sem einnig komu til greina voru Gói og Eldfærin í sviðssetningu Baunagrassins og Borgarleikhússins, Húsmóðirin í sviðssetningu Vesturports og Borgarleikússins, Rocky Horror í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar og Strýhærði Pétur í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|