
EFTIRFARANDI sviðslistamenn eru handhafar Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna 2004.

Gríman var afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu og í beinni útsendingu Sjónvarpsins þann 16. júní 2004. Alls voru veitt verðlaun í 15 flokkum leiklistar auk áhorfendaverðlauna og heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands sem Sigríður Ármann, frumherji á sviði listdans hlaut.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grimsson, afhenti Sigríði Grímuna við dynjandi lófatak gesta Borgarleikhússins sem risu úr sætum til að hylla þennan frumkvöðul á sviði danslistar á Íslandi. Ólafur Ragnar færði henni þakkir frá þjóðinni fyrir einstakt brautryðjendastarf og dansarar úr ballettskóla Sigríðar Ármann dönsuðu klassískan ballett henni til heiðurs.
Sýning ársins var valin leiksýningin Þetta er allt að koma sem byygð er á skáldsögu Hallgríms Helgasonar rithöfundar. Sýningin var sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikgerð og leikstjórn annaðist Baltasar Kormákur en hann hlaut einnig Grímuna fyrir starf sitt ásamt Gretari Reynissyni sem hlaut verðlaunin fyrir leikmynd sýningarinnar.
SÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Þetta er allt að koma eftir Hallgrím Helgason í leikgerð Baltasars Kormáks í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn annaðist Baltasar Kormákur.
LEIKSKÁLD ÁRSINS
Jón Atli Jónasson fyrir leiksýninguna Brim í sviðssetningu Vesturports.
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Baltasar Kormákur fyrir leikstjórn í leiksýningunni Þetta er allt að koma í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Eggert Þorleifsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Belgíska Kongó í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir hlutverk sitt í söngleiknum Edith Piaf í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Björn Thors fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Græna landinu í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Ríkarði þriðja í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKMYND ÁRSINS
Gretar Reynisson fyrir leikmynd í leiksýningunni Þetta er allt að koma í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
BÚNINGAR ÁRSINS
Elín Edda Árnadóttir fyrir búninga í söngleiknum Chicago í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LÝSING ÁRSINS
Egill Ingibergsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Meistaranum og Margarítu í sviðssetningu Hafnarfjarðarleikhússins.
TÓNLIST ÁRSINS
Jóhann G. Jóhannsson fyrir tónlistarstjórn í söngleiknum Edith Piaf í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
DANSVERÐLAUN ÁRSINS
Lára Stefánsdóttir, danshöfundur fyrir dans í danssýningunni Lúnu í sviðssetningu Íslenska dansflokksins.
DANSSÝNING ÁRSINS
Lúna eftir Láru Stefánsdóttur í sviðssetningu Íslenska dansflokksins.
BARNASÝNING ÁRSINS
Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn annaðist Sigurður Sigurjónsson.
ÚTVARPSVERK ÁRSINS
Útvarpsleikritið Hinn íslenski aðall eftir Bjarna Jónsson, byggt á sögu Þorbergs Þórðarsonar í leikstjórn Viðars Eggertssonar.
HEIÐURSVERÐLAUN LEIKLISTARSAMBANDS ÍSLANDS
Sigríður Ármann fyrir framúrskarandi frumkvöðlastarf í þágu listdans.
ÁHORFENDAVERÐLAUNIN (Sýning ársins að mati áhorfenda)
Söngleikurinn Chicago eftir Kander, Ebb og Fosse í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur. Leikstjórn annaðist Þórhildur Þorleifsdóttir.