
EFTIRFARANDI sviðslistamenn eru handhafar Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna 2005.

Gríman var afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu og í beinni útsendingu Sjónvarpsins þann 16. júní 2005. Alls voru veitt verðlaun í 15 flokkum leiklistar auk áhorfendaverðlauna og heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands sem Jón Sigurbjörnsson, söngvari, leikari og leikstjóri hlaut.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Jóni verðlaunin við mikið lófatak áhorfenda sem risu úr sætum og hylltu þennan fjölhæfa listamann. Ólafur Ragnar færi Jóni þakkir frá þjóðinni fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu sviðslista á Íslandi. Þakkarræða Jóns var bráðskemmtileg og er hún sú lengsta í sögu Grímunnar til þessa.
Sýning ársins var valin leiksýningin Draumleikur eftir August Strindberg. Sýningin var samstarfsverkefni á milli Leikfélags Reykjavíkur og Leiklistardeildar Listaháskóla Íslands og var sýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjórn var í höndum Benedikts Erlingssonar en hann hlaut einnig Grímuna fyrir leikstjórn sem og Gretar Reynisson fyrir leikmynd sína í sýningunni.
SÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Draumleikur eftir August Strindberg í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur í samstarfi við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Leikstjórn annaðist Benedikt Erlingsson.
LEIKSKÁLD ÁRSINS
Kristín Ómarsdóttir fyrir leiksýninguna Segðu mér allt í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Benedikt Erlingsson fyrir leikstjórn í leiksýningunni Draumleik í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur í samstarfi við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands.
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Ólafur Egill Egilsson fyrir hlutverk sitt í söngleiknum Óliver! í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar og fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Svört mjólk í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Hanna María Karlsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Héra Hérasyni í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Þröstur Leó Gunnarsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Koddamanninum í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Guðrún S. Gísladóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Mýrarljósi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKMYND ÁRSINS
Gretar Reynisson fyrir leikmynd í leiksýningunni Draumleik í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur í samstarfi við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands.
BÚNINGAR ÁRSINS
Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga í óperunni Sweeney Todd í sviðssetningu Íslensku Óperunnar.
LÝSING ÁRSINS
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Úlfhamssögu í sviðssetningu Leikhópsins Annað svið í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið.
TÓNLIST ÁRSINS
Eivör Pálsdóttir fyrir tónlist í leiksýningunni Úlfhamssögu í sviðssetningu Leikhópsins Annað svið í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið.
DANSVERÐLAUN ÁRSINS
Erna Ómarsdóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Við erum öll Marlene Dietrich FOR í sviðssetningu Íslenska dansflokksins.
DANSSÝNING ÁRSINS
Screensaver eftir Rami Be´er í sviðssetningu Íslenska dansflokksins.
BARNASÝNING ÁRSINS
Klaufar og kóngsdætur eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn annaðist Ágústa Skúladóttir.
ÚTVARPSVERK ÁRSINS
Útvarpsleikritið Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson í leikstjórn Hávars Sigurjónssonar.
HEIÐURSVERÐLAUN LEIKLISTARSAMBANDS ÍSLANDS
Jón Sigurbjörnsson fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu sviðslista.
ÁHORFENDAVERÐLAUNIN (Sýning ársins að mati áhorfenda)
Söngleikurinn Óliver! eftir Lionel Bart í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar. Leikstjórn annaðist Magnús Geir Þórðarson.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|