Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Um Grímuna
  • Leikárið 2011-12
  • Gagnasafn
  • Um Leiklistarsambandið
  • Skráning sýninga
  • Theatre in Iceland

Samstarfsaðilar

stod2_01

sagafilm_01

Þjóðleikhúsið
Borgarleikhúsið
Leikfélag Akureyrar
Íslenska óperan
Íslenski dansflokkurinn
Sjálfstæðu leikhúsin
Félag íslenskra leikara
Félag leikskálda og handritshöfunda
Félag tæknifólks í rafiðnaði
Útvarpsleikhúsið
Sjónvarpið

Listaháskóli Íslands

leikhus.is

Forsíða Fréttir Íslenska leiklistarávarpið 2008

Íslenska leiklistarávarpið 2008

viagra kaufencialis super active
argaiv1217

Share/Save/Bookmark

Image ALÞJÓÐA leiklistardagurinn er árlega haldinn hátíðlegur á vegum Alþjóða leikhúsmálastofnunarinnar ITI. Hvert aðildarland fær framúrskarandi leikhúslistamann til þess að semja ávarp sem flutt er við upphaf leiksýninga. Leiklistarsamband Íslands ITI fékk leikhúslistamanninn Benedikt Erlingsson til að semja ávarp ársins 2008 sem flutt verður á fjölmörgum leiksviðum. Ávarp hans fer hér á eftir, ásamt leiðbeiningum höfundar.

(Flytjandinn skal vera alvarlegur og ávarpa okkur af einurð og einlægni)

"KÆRU leikhússgestir,

Í dag er Alþjóða leiklistardagurinn. Þá eru haldnar ræður og gefin ávörp. Þið áhorfendur góðir fáið ekki að njóta leiksýningarinnar fyrr en sá sem hér stendur hefur lokið þessu ávarpi.
(Dok)
Þetta er svona um allan heim í dag. Þessvegna er dagurinn kallaður Alþjóða leiklistardagurinn.
(Dok)
Þessar ræður fjalla yfirleitt um getu leiklistarinnar til að stuðla að skilningi og friði þjóða í milli eða um upphaf og tilgang sviðslistarinnar í sögulegu ljósi og svona ræður hafa verið haldnar við upphaf leiksýninga á þessum degi síðan 1962 eða í 46 ár.
(Þögn, nýr tónn)
Samt er það svo að leiklistinni sem framin verður hér í kvöld er enginn greiði gerður með þessu ávarpi.
(Stutt dok)
Höfundar sýningarinnar; Skáldið, leikstjórinn, leikhópurinn og samverkamenn þeirra, gerðu ekki ráð fyrir svona ávarpi í upphafi leiks. Þessi ræða er ekki partur af hinu ósýnilega samkomulagi sem reynt verður að gera við ykkur eftir andartak.
(Dok)
Leikararnir standa nú að tjaldabaki um allan heim í kvöld og bíða þess pirraðir að þessum ræðum ljúki og leikurinn megi hefjast. Þetta ávarp er ekki að hjálpa þeim.
(Dok)
Og svo eru það þið áhorfendur góðir. Fæst ykkar áttuð von á þessari truflun. Ávarp vegna Alþjóða leiklistardagsins! Eitthvað sem þið vissuð ekki að væri til! Kannski setur þetta tal ykkur úr stuði og þið verðið ekki mönnum sinnandi í langa stund og náið engu sambandi við sýninguna.
(Þögn, nýr tónn)
En ef til vill mun leiksýningin, sem hér fer í gang eftir andartak, lifa af þetta ávarp. Ef til vill mun þetta tal eins og annað tal á hátíðisdögum hverfa úr huga ykkar undrafljótt. Kannski mun leiklistin “lifa af” Alþjóða leiklistardaginn og hrista hann af sér eins og svo margt annað í gegnum tíðina. Hún er nefnilega eldra fyrirbrigði en Alþjóða leiklistardagurinn, eins og sjálfsagt verður tíundað í ávörpum um allan heim í kvöld.
(Dok)
Sumir halda að hún eigi upphaf sitt í skuggaleik frummanna við varðeldana í grárri forneskju. Aðrir tengja upphafið við fyrstu trúarathafnir mannsins eða jafnvel fæðingu tungumálsins. Samt er það svo, að þegar maður horfir á flug tveggja hrafna sem snúa sér á hvolf og fetta sig og bretta í hermileik háloftanna og að því er virðist skellihlæja að leikaraskapnum, þá er ekki laust við að læðist að manni sá grunur að þessi göfuga list tilheyri ekki okkur einum og upphaf hennar sé dýpra en… “við”. Tilheyri kannski alveg eins fiskunum í sjónum.
(Þögn, nýr tónn)
Þetta var heimspekilegi kafli þessa ávarps. Hér fenguð þið það sem til var ætlast, nokkur orð um upphaf og eðli leiklistarinnar. Ég vona að þessi orð muni stuðla að skilningi og friði þjóða í milli.
(Dok)
Kæru áhorfendur. Nú mun þetta tal taka enda og sá sem hér stendur mun þagna svo átökin á sviðinu geti hafist. Þeirra vegna erum við jú hér. Þessu ávarpi er lokið. Takk fyrir."

(Ræðumaður hneigir sig og dregur sig í hlé án þess að brosa)

Benedikt Erlingsson

Leiðbeiningar
1. Dok = 1 til 1,5 sek
2. Þögn = 2 til 3 sek
3. Nýr tónn = frjáls og fer eftir innsæi og smekk flytjanda hvort og hvernig.
4. Ef flytjandinn er lítt undirbúinn og því bundinn við blaðið þá ætti hann einungis að líta upp og á horfa á áhorfendur í dokum og þögnum.

Um höfundinn
Benedikt Erlingsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1994 og lék Galdra-Loft í Óskinni eftir Jóhann Sigurjónsson á Litla sviði Borgarleikhússins haustið eftir. Hann setti upp leikritið Ormstungu, ásamt leikkonunni Halldóru Geirharðsdóttur og sænska leikstjóranum Peter Engkvist í Skemmtihúsinu.

Benedikt leikstýrði Skáldanótt eftir Hallgrím Helgason á Stóra sviði Borgarleikhússins haustið 2000 og haustið eftir lék hann Vladimir í Beðið eftir Godot eftir Samuel Beckett á Nýja sviðinu, í leikstjórn Peters Engkvist. Benedikt var leiðtogi leikhópsins á Nýja sviði leikárin 2001-2 og 2002-3 og leikstýrði þá verkunum Fyrst er að fæðast eftir hina dönsku Line Knutson, And Björk of course... eftir Þorvald Þorsteinsson og Sumarævintýri sem byggt var á Vetrarævintýri eftir Shakespeare.

Benedikt var búsettur í Kaupmannahöfn um tveggja ára skeið og starfaði þar og víðar á Norðurlöndum. Hann kom þó heim og leikstýri vorið 2005 Draumleik eftir Strindberg á Stóra sviði Borgarleikhússins sem sviðssett var af Leikfélagi Reykjavíkur í samstarfi við Listaháskóla Íslands. Benedikt hlaut Grímuna fyrir leikstjórn sína.

Hann er nú fluttur heim og leikur um þessar mundir hinn mikla skörung Egil Skallagrímsson í sýningunni "Mr Skallagrimsson" í Landnámssetri Íslands í Borgarnesi. Á Grímuhátíðinni 2007 hreppti hann þrenn verðlaun, sem leikskáld og leikari ársins fyrir Mr. Skallagrímsson og sem leikstjóri ársins fyrir Ófögru veröld eftir Anthony Neilson sem sýnd var á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Benedikt hefur einnig leikið í kvikmyndum og í sjónvarpi, þar má nefna mynd leikstjórans Lars von Trier, Direktoren for de hele, Mávahlátur og Tár úr steini og sjónvarsþættina Fóstbræður.

Benedikt leikstýrði nýlega leiksýningunni Sólarferð eftir Guðmund Steinsson sem frumsýnd var í janúar 2008 á stóra sviði Þjóðleikhússins.

< Fyrri   Næsta >
Gríman - Íslensku sviðslistaverðlaunin   |   Tjarnarbíó   |   Tjarnargötu 12   |   101 Reykjavík   |   griman@griman.is

©2006-2011 Hringbrot