Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Ljósmyndir
  • Myndbönd
  • Leikárið 2010-11
  • Leikárin 2005-10
  • Verðlaunahafar
  • Tilnefningar
  • Um Grímuna
  • Um Leiklistarsambandið
  • Sviðslistamenn
  • Gagnlegir tenglar
  • Theatre in Iceland

Styrktaraðilar

Exton

Menntamálaráðuneytið
Reykjavíkurborg

Samstarfsaðilar

Þjóðleikhúsið
Borgarleikhúsið
Leikfélag Akureyrar
Íslenska óperan
Íslenski dansflokkurinn
Sjálfstæðu leikhúsin
Félag íslenskra leikara
Félag leikskálda og handritshöfunda
Félag tæknifólks í rafiðnaði
Útvarpsleikhúsið
Sjónvarpið
Listaháskóli Íslands
leikhus.is

Forsíða Verðlaunahafar Handhafar heiðursverðlauna 2007

Handhafar heiðursverðlauna 2007

Share/Save/Bookmark

Image HEIÐURSVERÐLAUN Leiklistarsambands Íslands árið 2007 hlutu leikararnir Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu leiklistar. Forseti Íslands veitti þeim verðlaunin við þétt lófatak áhorfenda í Íslensku óperunni sem stóðu á fætur og hylltu þessa ástsælu leikara. Ólafur Ragnar færði þeim þakkir frá þjóðinni fyrir ótalmörg minnisstæð hlutverk og einstakt starf á sviði leiklistar en bæði hafa þau staðið á sviðinu í rúmlega sextíu ár.

Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands, hljóta að þessu sinni tveir valinkunnir listamenn. Þetta eru karl og kona, bæði fædd árið 1923 og bæði hafa þjónað leiklistinni í meira en hálfa öld og voru yngstu leikarar sem fastráðnir voru í Þjóðleikhúsinu, þegar það tók til starfa og helguðu síðan Þjóðleikhúsinu fyrst og fremst krafta sína.

Hún lék í fyrsta sinni með Leikfélagi Reykjavíkur 1941, þá átján ára gömul, síðan með Leikfélagi Hafnarfjarðar þar sem hún er fædd, fór í Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar og síðan í framhaldsnám til Bretlands. Hún sló í gegn í gamanleik eftir Noel Coward 1947 og eftir að hún lék Snæfríði Íslandssól í opnunarsýningu leikhússins á Íslandsklukkunni  blandaðist engum hugur um að þarna var á ferðinni fjölhæf og mikilhæf leikkona, enda bar hún uppi hvert leikritið á fætur öðru næstu ár og áratugi.

Hún hefur einnig leikið mikið í útvarpi og sjónvarpi og kvikmyndum og hlutverkin eru orðin gríðarlega mörg og meðal eftirminnilega sviðsverka má nefna: Á ystu nöf, Syndafallið, Táningaást,  Ímyndunarveikina og Fröken Margréti sem gekk lengur en flest verk í Þjóðleikhúsinu.

Þetta er auðvitað Herdís Þorvaldsdóttir.

Og þá er röðin komin að leikara sem þreytti frumraun sína í Kaupmanninum í Feneyjum 1944. Hann stundaði einnig leiknám hjá Lárusi Pálssyni og síðan fór hann til Norðurlanda til framhaldsnáms.

Líkt og Herdís bara hann áratugum saman uppi hverja sýninguna á fætur annarri í Þjóðleikhúsinu og var líkt og Herdís flestum vinsælli. Hver man ekki Fiðlarann á þakinu?

Hlutverk hans skipta hundruðum og nú vita allir fyrir löngu við hvern er átt; Róbert Arnfinnsson.

Sveinn Einarsson

Gríman - Íslensku leiklistarverðlaunin   |   Lindargötu 6   |   101 Reykjavík   |   Sími: 552 6040   |   griman@griman.is

©2006-2008 Hringbrot