
EFTIRFARANDI sviðslistamenn eru handhafar Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna 2007.

Gríman var afhent við hátíðlega athöfn í Íslensku óperunni og í beinni útsendingu Sjónvarpsins föstudaginn 15. júní 2007. Alls voru veitt verðlaun í 16 flokkum leiklistar auk heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands sem leikararnir Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson hlutu.
Forseti Íslands veitti þeim verðlaunin við þétt lófatak áhorfenda í Íslensku óperunni sem stóðu á fætur og hylltu þessa ástsælu leikara. Ólafur Ragnar færði þeim þakkir frá þjóðinni fyrir ótalmörg minnisstæð hlutverk og einstakt starf á sviði leiklistar en bæði hafa þau staðið á sviðinu í rúmlega sextíu ár.
Sýning ársins var að þessu sinni valin leiksýningin Dagur vonar eftir Birgi Sigurðsson í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar sem frumsýnd var á Nýja sviði Borgarleikhússins, þann 11. janúar 2007, á 110 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur. Sigrún Edda Björnsdóttir hlaut Grímuna sem leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Degi vonar.
SÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Dagur vonar eftir Birgi Sigurðsson í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur. Leikstjórn annaðist Hilmir Snær Guðnason.
LEIKSKÁLD ÁRSINS
Benedikt Erlingsson fyrir einleikinn Mr. Skallagrímsson í sviðssetningu Söguleikhúss Landnámsseturs.
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Benedikt Erlingsson fyrir leikstjórn í leiksýningunni Ófögru veröld í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Benedikt Erlingsson fyrir hlutvek sitt í leiksýningunni Mr. Skallagrímssyni í sviðssetningu Söguleikhúss Landnámsseturs.
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Sigrún Edda Björnsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Degi vonar í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Þröstur Leó Gunnarsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Killer Joe í sviðssetningu Leikhússins Skámána.
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Charlotte Bøving fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Ófögru veröld í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKMYND ÁRSINS
Gretar Reynisson fyrir leikmynd í leiksýningunni Ófögru veröld í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur
BÚNINGAR ÁRSINS
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir fyrir búninga í söngleiknum Legi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LÝSING ÁRSINS
Halldór Örn Óskarsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Ófögru veröld í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
TÓNLIST ÁRSINS
Hljómsveitin Flís fyrir tónlist í söngleiknum Legi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
SÖNGVARI ÁRSINS
Bjarni Thor Kristinsson fyrir hlutverk sitt í óperunni Brottnáminu úr kvennabúrinu í sviðssetningu Íslensku óperunnar.
DANSARI ÁRSINS
Erna Ómarsdóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Mysteries of Love í sviðssetningu Ernu Ómarsdóttur og Jóhanns Jóhannssonar.
DANSHÖFUNDUR ÁRSINS
Erna Ómarsdóttir og Margrét Sara Guðjónsdóttir fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Mysteries of Love í sviðssetningu Ernu Ómarsdóttur og Jóhanns Jóhannssonar.
BARNASÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Abbababb! eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson í sviðssetningu Leikhópsins Á senunni í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið. Tónlist er eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson. Leikstjórn annaðist María Reyndal.
ÚTVARPSVERK ÁRSINS
Útvarpsleikritið Harún og sagnahafið eftir Salman Rushdie í þýðingu Karls Emils Gunnarssonar. Leikstjórn annaðist Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Tónlist er eftir Axel Árnason. Hljóðsetningu annaðist Björn Eysteinsson
HEIÐURSVERÐLAUN LEIKLISTARSAMBANDS ÍSLANDS
Leikararnir Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu leiklistar á Íslandi.