TILNEFNINGAR til Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna 2008 voru gerðar opinberar á Stóra sviði Þjóðleikhússins föstudaginn 16. maí. Listamenn sem tilnefndir eru til verðlauna mættu til að taka á móti viðurkenningum og svo var skálað uppi á sviðinu og spáð í spilin um það hverjir munu hljóta Grímuna eftirsóttu föstudaginn 13. júní.
TILNEFNINGAR til Grímunnar 2008 verða opinberaðar á Stóra sviði Þjóðleikhússins í dag 16. maí kl 16. Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt er verndari Grímunnar, mun afhenda tilnefndum listamönnum viðurkenningar. Grímuhátíðin sjálf verður svo haldin í sjötta sinn föstudaginn 13. júní í Þjóðleikhúsinu og í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Búast má við glæsilegri verðlaunahátíð, en Grímuhátíðin er einn af hápunktum ársins í menningarlífinu.
ALÞJÓÐA leiklistardagurinn er árlega haldinn hátíðlegur á vegum Alþjóða leikhúsmálastofnunarinnar ITI. Hvert aðildarland fær framúrskarandi leikhúslistamann til þess að semja ávarp sem flutt er við upphaf leiksýninga. Leiklistarsamband Íslands ITI fékk leikhúslistamanninn Benedikt Erlingsson til að semja ávarp ársins 2008 sem flutt verður á fjölmörgum leiksviðum. Ávarp hans fer hér á eftir, ásamt leiðbeiningum höfundar.